Hefurðu áhyggjur af hegðun þinni á netinu?

Það er ólöglegt að skoða, eiga eða senda kynferðislegar myndir af manneskju undir 18 ára.

Áttu í vanda?

Margir líkja notkun sinni á ólöglegu myndefni við fíkn sem erfitt er að stöðva. Til að fá betri mynd af stöðu þinni, skoðaðu eftirfarandi atriði og punktaðu hjá þér hver eiga við þig.

  • Hefur myndað þol. Þarft sífellt fleiri og nýjar myndir.
  • Eyðir meiri tíma í að skoða en þú ætlaðir. Tíminn hverfur þegar þú ert á netinu.
  • Fráhvarfseinkenni. Finnur fyrir neikvæðum tilfinningum þegar þú ert ekki að skoða.
  • Erfiðleikar við að stjórna notkun. Hefur reynt að hætta að skoða efni en byrjar svo aftur.
  • Fyrirhöfn. Eyðir leitarsögu, finnur þér stað og stund til að vera í einrúmi að skoða.
  • Sleppir venjum og verkefnum. Hættir að sinna verkefnum til að skoða efni, til dæmis dregur úr áhugamálum og samveru með fjölskyldu og vinum.
  • Hunsar neikvæðar afleiðingar. Skoðar efni án þess að hugsa um afleiðingarnar, til dæmis að vaka fram eftir til að fara á netið eða gerir lítið úr tilfinningum eins og sektarkennd, skömm eða ótta við handtöku.

Ef þú hefur merkt við:

  • 2-3 atriði er það vísbending um að hegðunin sé að vinda upp á sig eða stigmagnast.
  • 4-5 atriði er greinilegur vandi á ferð.
  • 6-7 atriði er alvarlegur vandi til staðar sem mikilvægt er að grípa inn í.

Ef þú hefur merkt við eitthvað af ofangreindum atriðum hvetjum við þig til að hafa samband.