Fáðu hjálp og komdu í veg fyrir skaðlega hegðun

Ef þú heldur að þú hafir mögulega beitt einhvern kynferðislegu ofbeldi eða þú eða aðrir hafa áhyggjur af kynferðislegri hegðun þinni, á netinu eða gagnvart öðru fólki, þá geturðu fengið hjálp.

Taktu skrefið er hópur sálfræðinga með sérþekkingu á þessu sviði.  Þjónustan er ekki ókeypis en fyrir fyrsta viðtal er eingöngu greitt komugjald, 3000 kr. Flest stéttarfélög niðurgreiða sálfræðiþjónustu og einnig er hægt að athuga með styrk hjá félagsþjónustu eða þjónustumiðstöðvum hjá þínu sveitarfélagi.

Sálfræðingar Taktu skrefsins eru bundnir þagnarskyldu þannig að þær upplýsingar sem þú gefur upp í meðferðinni trúnaðarmál. Þó eru undantekningar á þeirri reglu, til dæmis ef metið er að þú sért í hættu eða einhver í kringum þig. Nánari upplýsingar má finna í siðareglum sálfræðinga og í lögum um heilbrigðisstarfsmenn.

Taktu fyrsta skrefið og fáðu hjálp með því að hafa samband á taktuskrefid@taktuskrefid.is. Tölvupósti er svarað eins fljótt og hægt er.